Glóð um jólin – Til styrktar Konukoti

Næstkomandi fimmtudag, þann 26. október kl. 17:00 verður nýr íslenskur hönnunargripur, Glóð, kynntur með viðhöfn í Smiðsbúðinni á Geirsgötu. Um er að ræða kertastjaka sem verður seldur til styrktar Konukoti, neyðarskýli fyrir húsnæðislausar konur. Með kaupum á Glóð er þannig hægt að sameina í einni gjöf vandaða íslenska hönnun og stuðning við nauðsynlega starfsemi Konukots.

Erling Jóhannesson gullsmiður hannaði þennan fallega stjaka, en hann hentar fyrir lítið kertaljós og er gerður úr möttu og spegluðu stáli, sem er skorið út í tímalaust form sem vísar m.a. í hátíðahefðir á íslenskum heimilum. 

Áformað er að Glóð 2023 verði fyrst í röð sex stjaka sem kynntir verða árlega og seldir til styrktar starfsemi Konukots. Glóð fæst í Smiðsbúðinni og helstu hönnunarverslunum s.s. verslunum Epal og  Kokku 

Konukot er rekið af félagasamtökunum Rótinni samkvæmt þjónustusamningi við Reykjavíkurborg, og þjónar hópi sem hefur fjölbreyttan bakgrunn og þarfir. Hugmyndafræði Rótarinnar byggist á því að nálgast fíkn sem fjölþættan vanda, afleiðingu áfalla og félagslegra aðstæðna.